29.2.2012 | 16:54
Stjórn FME segi af sér
Mér finnst að stjórn fjármálaeftirlitsins ætti að segja af sér ekki seinna en núna.
Hef ekki orðið vitni að því að stjórn nokkurs fyrirtækis eða stofnunar hafi skaðað ímynd eða málstað fyrirtækis eða stofnunar eins og stjórn fjármálaeftirlitsins hefur gert á undanförnum dögum.
Hvernig getur stjórnin ímyndað sér að stofnunin hafi getað sinnt sínum verkefnum síðastliðna daga?
Heldur stjórnin að starfsfólkið séu kjánar?
Heldur stjórnin að starfsmenn haldi áfram vinnu af fullri einbeitingu við núverandi aðstæður?
7.2.2012 | 13:49
Furðu verðlagseftirlit
Mín fasteignagjöld í Mosfellsbæ hækkuðu um 20% á milli áranna 2011 og 2012!
Þetta er að vísu vegna hækkunar á fasteignamati þó álagningarprósentan sé óbreytt en 2011 lækkaði líka fasteignamatið og þá mætti bæjarfélagið því með því að hækka álagninguna! Ég held nú bara að ASÍ ætti að hætta þessu bulli þeir eru augljóslega ekki megnugir að hafa virkt verðlagseftirlit.
|
Reykjavík eina sem hækkaði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
16.1.2012 | 18:30
Ótrúlega afstaða til neytenda.
Þetta saltmál sýnir alveg ótrúlega afstöðu Ölgerðarinnar til neytenda. Jú við vitum að hráefnið er ekki til matvælaframleiðslu, teljum það ekki skaðlegt og því er haldið áfram að afgreiða það til framleiðenda, með samþykki MAST! Menn með sjálsvirðingu hefðu tekið hefðu tekiðhráefnið úr umferð. Hvað er í Maltinu og Appelsíninu sem ekki "hefur fundist" ennþá?
|
Segir engan eðlismun á saltinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
14.1.2012 | 15:23
Skálafell og Mosfellsbær
Mosfellsbær hefði getað kostað opnun skíðasvæðisins í Skálafelli í a.m.k. 10 ár fyrir söluandvirði byggigngarréttar á leigulóð bæjarfélagsins að Hulduhólum í Mosfellsbæ. Í staðinn ákvað meirihluti Sjálfstæðismanna að leiguhafi fengi að selja byggingarrétt á lóðum bæjarfélagsins. Þetta var þeirra forgangsröðun, svona til að setja hlutina í samhengi.
|
Vilja opna „besta skíðasvæðið“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
4.11.2011 | 15:36
SI óska eftir afskiptum FME
Sendi Lýsing frá sér yfirlýsingu á heimasíðu sinni um að niðurstaða Hæstaréttar hefði ekki fordæmisgildi gagnvart fyrirtækinu þar sem samningur Íslandsbanka væri í veigamiklum atriðum frábrugðinn fjármögnunarleigusamningum Lýsingar.
Hvernig vissi Lýsing um samninga Íslandsbanka? Var það í gegnum Samtök fjármálafyrirtækja?
Eru samtökin til þess? Miðla upplýsingum og samræma aðgerðir fjármálafyrirtækjanna!
|
SI óska eftir afskiptum FME |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
22.8.2011 | 18:49
Gísli úr Framsókn
Gísli skildi þó ekki ætla að fara að sinna starfisínu sem talsmaður netenda?
|
Gísli Tryggvason úr Framsókn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.8.2011 | 11:43
En hvað um hagræðingu eða aðra forgangsröðun?
Er Halldór dæmigerður sveitarstjórnarmaður sem ekki dettur í hug að hægt sé að hagræða eða
forgangsraða öðruvísi? Þurfi heimili landsins ekki einmitt að gera það og í enn ríkara mæli ef
sjónarmið eins og fram kemur hjá formanni Sambnds íslenskra sveitarfélaga verða ofaná?
|
Tekjuaukning eða niðurskurður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
4.5.2011 | 22:52
Tónlistarhúsið
Áttu landsmenn það ekki inni að sjónvarpað væri beint frá opnunartónleikum í Hörpunni í kvöld?
Ekki er búið að leggja svo lítið opinbert fjármagn í þessa byggingu og ómældar milljónir eiga eftir að renna úr vösum okkar skattborgara á komandi árum því það þarf enginn að segja mér að þetta tónlistarhús eigi nokkurn tíman eftir að standa undir rekstrarkostnaði. Sjáið bara Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið til dæmis. Enda á það kannski ekki að gera það en þá á líka að segja skattborgurum það!
|
Nýir tímar í menningarsögunni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
12.4.2011 | 10:09
Fyrrverandi menntamálaráðherra
Hvað skyldi fyrrverandi menntamálaráðherra segja nú um endurmenntunarþörf
sérfræðinga Danske Bank?
|
Horfið fram á veginn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
11.3.2011 | 14:03
Sannur frímúrari fer hvergi
Hvers skonar öfugmæli eru þetta eiginlega. Settist í stjórn Framtakssjóðsins vegna stjórnarsetu sinnar í Lifeyrissjóði verslunarmanna en yfirgefur ekki Framtakssjóðinn þó hann yfirgefi lífeyrissjóðinn.
|
Ætlar ekki að segja sig úr stjórn Framtakssjóðs |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Jón Sævar Jónsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 4915
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


